Hvað er vaktað
Sama hvar kerfin ykkar keyra og hvenær frávik koma upp: vaktin nær yfir allt umhverfið, á einum stað.
Umhverfi
Við vöktum kerfi í AWS, Azure og Google Cloud, og í eigin gagnaveri, hvort sem það er eitt umhverfi eða blanda. Þið fáið eina vakt og eina yfirsýn, óháð því hvar hlutirnir keyra.
Gagnagrunnar
Allar tegundir gagnagrunna, hvort sem þeir keyra sem skýjaþjónusta eða á eigin vélum. Við fylgjumst ekki bara með því hvort þeir eru uppi, heldur líka með afköstum: hægum fyrirspurnum, álagi og plássi, áður en það fer að hægja á notendum.
ETL-keyrslur og gagnaflæði
Gögn sem eiga að skila sér á réttum tíma eru undir stöðugu eftirliti. Ef keyrsla misferst, tefst eða skilar óeðlilegri niðurstöðu er tekið á því áður en skýrslur morgundagsins byggja á röngum gögnum.
Afritun og endurheimt
Þú átt afrit. En virka þau?
Það er eitt að taka afrit og annað að endurheimta gögn úr því. Við vöktum að afritun eigi sér stað og prófum endurheimt sjálfvirkt, til að kanna hvort afritin nýtist þegar á reynir. Þannig vitið þið að afritin virka, áður en þið þurfið á þeim að halda.
Þarf allt að vera á vakt?
Úttektin í upphafi leiðir í ljós hvað skiptir máli hjá ykkur. Ekki þarf allt að vera á sólarhringsvakt; við hjálpum ykkur að forgangsraða eftir því hvar uppitími þarf að vera mestur. Sjá ferlið.