Fara beint í efni
Vöktun og viðbragð

Algengar spurningar

Kemur vaktin í stað okkar tæknifólks?

Nei. Við erum auka stuðningur við ykkar fólk. Við tökum næturnar, helgarnar og fríin, greinum atvikin og leysum það sem við höfum samið um. Ykkar fólk er kallað til þegar þarf, samkvæmt verklagi sem við mótum saman.

Hvenær er okkar fólk vakið?

Aðeins þegar verklagið segir til um það. Áður en vaktin hefst ákveðum við saman hvað við leysum sjálf, hvenær þarf að kalla til og hvern, eftir kerfum og alvarleika. Sjá hvernig vaktin virkar.

Hvaða umhverfi vaktið þið?

AWS, Azure, Google Cloud og eigin gagnaver, og blöndur af þeim. Sjá hvað er vaktað.

Hvað með gagnagrunna og gagnaflæði?

Við vöktum allar tegundir gagnagrunna, þar á meðal afköst þeirra, auk ETL-keyrslna og gagnaflæðis. Ef keyrsla misferst eða tefst er tekið á því strax.

Við tökum afrit. Er það ekki nóg?

Afrit eru aðeins jafngóð og endurheimtin úr þeim. Við prófum endurheimt sjálfvirkt, svo þið vitið að afritin virka áður en á þeim þarf að halda.

Fáum við of margar viðvaranir?

Það er algengt vandamál, og hluti af því sem við leysum. Sérfræðingar meta hverja viðvörun og við fínstillum vöktunina eftir gangsetningu svo réttu málin fái athygli og suðið minnki.

Hvað þurfum við að veita aðgang að?

Það ræðst í úttektinni og fer eftir því hvað á að vakta og hvað við eigum að leysa sjálf. Þið ákveðið aðganginn og getið breytt honum hvenær sem er.

Hvernig byrjum við?

Á úttekt á umhverfinu ykkar. Við förum yfir hvað er þegar vaktað, hvar vantar yfirsýn og hvað skiptir mestu. Sjá ferlið eða bókaðu úttekt.