Fara beint í efni
Vöktun og viðbragð

Hvernig vaktin virkar

Vöktunin grípur atvik, teymið okkar greinir þau og vinnur að úrbótum þar til málið er leyst. Allan sólarhringinn, samkvæmt verklagi sem við mótum með ykkur.

Frá viðvörun til úrlausnar

  1. Vöktun. Kerfin, gagnagrunnarnir og gagnaflæðin eru undir stöðugu eftirliti. Frávik kalla á viðvörun.
  2. Viðvörun til okkar, ekki til ykkar. Viðvaranir fara beint til teymis APRÓ. Ykkar fólk þarf ekki að vakna við hverja þeirra.
  3. Greining og mat. Sérfræðingur metur hvað gerðist og hvaða áhrif það hefur á reksturinn. Er þetta raunverulegt atvik eða suð? Þolir það bið til morguns?
  4. Viðbragð. Við vinnum að úrbótum samkvæmt verklaginu. Þegar atvik fellur utan þess sem við leysum sjálf köllum við til þann sem á að kalla til, eftir boðleiðunum sem við skilgreindum saman.
  5. Lokun og eftirfylgni. Málið er leitt til lykta og skráð. Ef sama vandamálið kemur upp aftur leitum við að rótinni svo það endurtaki sig ekki.

Dómgreind skiptir máli

Viðvaranir frá öllum kerfum segja ekki alla söguna. Margar þeirra skipta engu máli; sumar skipta öllu. Sérfræðingar okkar þekkja innviðina ykkar, greina frávikin og meta áhrif þeirra áður en nokkur er vakinn.

Þannig fækkar líka viðvörunum með tímanum: við fínstillum vöktunina svo réttu málin fái athygli og hin ekki.

Skýr verkaskipting

Áður en vaktin hefst ákveðum við saman:

  • Hvað við leysum sjálf, til dæmis endurræsingu þjónustu, laust pláss eða keyrslu sem þarf að endurtaka.
  • Hvenær ykkar fólk er kallað til, og hver, eftir kerfum og alvarleika.
  • Hvernig er látið vita, hvaða boðleiðir eru notaðar og hvenær.

Verklagið er skráð og þið eigið það. Það er endurskoðað eftir því sem umhverfið breytist.

168 klukkustundir í viku

Vaktin er alltaf til staðar, á kvöldin, um helgar og í sumarfríum. Tæknifólkið ykkar þarf ekki að standa bakvaktir ofan á fullan vinnudag, og vaktin er ekki háð því að sömu lykilmanneskjurnar séu alltaf tiltækar.

Við vinnum með ykkar fólki

Við erum auka stuðningur við tæknifólkið ykkar, ekki staðgengill þess. Sérfræðingar okkar miðla þekkingu og reynslu og benda á það sem má bæta til að fyrirbyggja bilanir.

Heimildir