Svona byrjum við að vinna saman
Frá fyrsta fundi til vaktar sem virkar: við byrjum á ykkar umhverfi, mótum vaktina með ykkur og prófum hana áður en hún tekur við.
1. Við byrjum á úttekt
Við förum yfir umhverfið með ykkar tæknifólki:
- Hvað er þegar vaktað, og hvernig?
- Hvar vantar yfirsýn?
- Hvaða kerfi eru mikilvægust, og hvar þarf uppitími að vera hár?
- Hvernig er afritun háttað, og hefur endurheimt verið prófuð?
Úttektin leggur grunninn að næstu skrefum. Þið fáið niðurstöðurnar í hendur, hvort sem þið haldið áfram með okkur eða ekki.
2. Við mótum vaktina með ykkur
Saman ákveðum við hvað á að vakta og hvernig á að bregðast við atvikum. Við skýrum verkaskiptinguna: hvað við leysum og hvenær þarf að kalla ykkar fólk til. Niðurstaðan er skráð verklag sem þið eigið.
3. Við tökum við vaktinni
Við setjum vöktunina upp og prófum viðvaranir og boðleiðir áður en vaktin hefst, svo ekkert komi á óvart fyrstu nóttina. Eftir gangsetningu fínstillum við vöktunina með ykkur svo réttu málin fái athygli.
Og svo?
Umhverfi breytast. Við förum reglulega yfir vaktina með ykkur, bætum við því sem bætist við og tökum út það sem skiptir ekki lengur máli.